Fluttningar og læti
Jæja þá er komið að smá færslu hér, ég veit ekki alveg afhverju ég er að halda úti þessu blessaða bloggi, ekki sú duglegasta að blogga.Sumarfríið var frábært og alltof fljótt að líða en gerði mikið, fórum til Tenerife, og svo í útilegu á þingvelli, á Grundarfjörð og í Búðardal og svo á Akureyri, þannig að það var nóg að gera og fór svo í helling af heimsóknum gerði örugglega met í því og svo var brúðkaup og svo fórum við heim, og þá kom Afi hans Tryggva í heimsókn og konan hans, þannig að það er búið að vera nóg að gera.
Svo er Fannar bróðir og fjölskylda að koma um miðjan sept í nokkra daga, og hlakka ég mjög mikið til að fá þau.
Svo erum við að fá íbúðina á morgun og erum að pakka og ætlum að flytja þetta smátt og smátt sem er mjög fínt enda að vinna líka þannig að það er nóg um að vera.Svo er maður mikið á Facebook sem er mjög skemmtilegt.
Jæja það er ekkert meira að frétta þannig að ég bið ykkur vel að lifakveðja Scully
Sumarfrí er alveg frábært
Jæja þá er nú komin tími á smá færslu, enda 2 mánuðir síðan síðast og margt búið að gerast. Er núna komin í sumarfrí og verð það næstu fimm vikurnar ljúft líf það, en er búin að vera á faraldsfæti í júní á milli Akureyrar og Reyðarfjarðar um hverja helgi í júní, sem er búið að vera mjög gaman en er líka búin að vera mjög þreytt á hverjum mánudegi í júní þannig að sumarfríið var vel þegið þegar það kom loksins.Það sem við erum búin að vera að gera í júní er útskrift og brúðkaup og margt fleira.
Svo erum við að fara að flytja já en ekki til Akureyrar að þessu sinni, en það kemur að því ætla ég að vona, en við erum að fara að flytja í annað leiguhúsnæði enda er þetta sem við erum í búið að hækka um 16.000 á mánuði síðan að við komum, og okkur finnst það nú bara ágætis peningur sem við getum bara notað í eitthvað annað eins og sparnað, en við erum ekki að flytja langt heldur bara í næstu götu og ég sé í húsið þegar ég horfi út um gluggann, þetta er svona 4 íbúða hús og við verðum á 2 hæð með flott útsýni og við fáum íbúðina 1 september, þannig að það er bara nóg að gera framundan, set inn link sem þið getið skoðað hann er hérna Bakkagerði 3 herb http://habil.is/lix/adjalta?PageDisp=132389&sysl&fastaust&
Annars erum við að fara til Tenerife á þriðjudaginn að sleikja sólina því ekki hefur verið mikið af sól hérna fyrir austan það sem af er af sumri, þannig að við vonum að við fáum bara gott haust í staðin.
Ég ætla að vera áfram að vinna á leikskólaum þennan veturinn og sjá svo til hvað ég geri, en Tryggvi fór í sveinsprófið í júní og náði öllu bóklega með mjög góðum einkunum en féll í þessu verklega þannig að hann þarf að taka það aftur og þá nær hann því, en það var vegna reynsluleysis og það sem hann gerði var mjög gott þannig að hann veit alveg hvernig hann klárar þetta í febrúar, og við vorum frekar fúl að hann náði þessu ekki núna því það vantaði bara svo lítið upp á en þá tekur hann þetta bara næst, en það er bara svo leiðinlegt að þurfa að bíða svona lengi því sveinsprófin eru í febrúar og júní og mér finnst það svo asnalegt því það er svo stutt frá feb til júní en lengra frá júní til feb, mér finnst bara asnalegt að það sé ekki jafnt á milli prófa, en þessu ræður maður ekki og svona er þetta bara.
Annars er bara allt gott að frétta og ég vona að það sé líka hjá ykkur sem en eru að koma hérna inn og leita frétta, ég þarf að standa mig betur í því, ætla allavegna að hafa það mánaðarlegt kannski.
Jæja þetta er gott í bili og ég bið ykkur vel að lifakveðja Scully sem er á leið til Tenerife
Ein færsla fyrir Þrítugt
Jæja þá er nú aldurinn að færast yfir mann, en ég er samt ekki að finna mjikið fyrir því skal ég segja ykkur og ég er bara enþá 25 og ekki degi eldri en það.Börnin á deildinni minni sungu svo fyrir mig afmælissönginn og það var alveg frábært frá þeim og vinnan gaf mér gjafabréf í afmælisgjöf.Annars er bara allt gott að frétta og lífið gengur sinn vana gang, en það breytist eftir helgi því þá er Tryggvi að fara suður og vera þar alla virka daga í mai þannig að ég verð bara ein í koti virka daga og svo endurheimti ég hann um helgar.
Annars er ég nú búin að vera frekar veik í apríl og er þetta nú komið á 4 viku og er ég að verða frakar þreytt á þessu, en vonandi fer þetta að koma og ég hætti að vera með hor í nös og raddlaus.
Svo er vorsýning í vinnuni núna um helgina og ég missi af því að sjá börnin mín syngja og fara með þulu sem ég er búin að vera að æfa þau í læra, en það kemur önnur vorsýning eftir þessa.
Er að fara suður núna á eftir og það er nokkur tilhlökkun í gangi skal ég segja ykkur.
Jæja þetta er gott í bili ogég bara bið að heilsa ykkur öllum sem lesið þetta og hafið það sem allra best
Þú ert í blóma lífsins fíflið þitt
Var leikrit sem var sýnt hér af 8-10 bekk hérna á Reyðarfirði og það var bara mjög skemmtilegt,
enda ekki á hverjum degi sem það sé leikhús á Reyðarfirði ó nei og svo er bíóið hætt líka, en það er búið að opna Pöbbinn aftur, þannig að það er nú hægt að fara á djammið hérna á Reyðó, hef reyndar ekki sjálf farið en þá en það kemur að því örugglega.
Erum að fara noður á morgun
og Fannar er líka að fara norður, þannig að við verðum öll saman fjölskyldan eins og um jólin og svo er Fannar líka að hugsa um að flytja noður þannig að þá verður styttra að heimsækja hann.
Tryggvi er svo að fara til Feneyja strax eftir páska
og verður í 4 daga hann er að fara á ráðstefnu og svo kemur hann heim og verður heima í mánuð og svo verður hann í Reykjavík allan maí í upprifjun fyrir sveinsprófið sem ég ætla svo að vona að nái
og verði orðin rafvirki í júní,
það væri bara alveg best sko.
Hér á bæ er svo búið að panta sólarlandaferð
til Tenerife, ég verð í 2 vikur en Tryggvi bara 1 viku því að hann er að fara til USA á námskeið, já þið haldið örugglega að það sé leiðinlegt að búa með mér
og já er farin að halda það sjálf líka, enda karlinn alltaf að fara eitthvað í burtu.

kveðja úr blíðunni á austurlandi
Jæja þá er nú best að koma einhverjum ekki fréttum hérna
Það gerist ekki margt hérna í þessu koti okkar, maður bara vinnur, sefur, borðar og er þreyttur allavegna ég er komin upp í rúm fyrir 10 á kvöldin enda vöknuð 6 á morgnana, en mér líka finnst það gott, enda frekar þreytt eftir daginn, við að skemmta 3 og 4 ára börnum allan daginn
.Við ætum að fara norður um páskana og þá á að djamma feitt er það ekki Svana og Helga Sóley?????Svo hef ég heyrt að ástkæri bróðir minn og fjölskylda
ætli að vera á norðurlandinu um páskana, þannig að það er nóg að hlakka til og svo ætla ég líka að kíkja í heimsóknir sem ég dregið svolítið lengi og ætla að láta verða af því að láta sjá mig, þannig að það verður nóg að gera.Svo er ferming í apríl sem ég mun ekki láta mig vanta í,
þannig að þá er aftur norðurferð, og svo í lok apríl byrjun maí erum við búin að panta okkur flug suður og ætlum að eiga langa helgi fyrir sunnan.Já það er nóg að skipulaginu hérna hjá mér og svo erum við líka að skipuleggja smá ættarmót í júní.
Þakka guði fyrir mannbroddana mína þeir eru sko búinir að koma sér vel þessa dagna, ég væri örugglega búin að hálsbrjóta mig
, ef ég væri ekki með þá undir skónum, því ég er soddan belja á svelli þó að sé ekki svell, þetta skilja þeir sem þekkja mig vel
Jæja þetta er orðið gott af ekki fréttum þessa vikuna og hafið það gott þangað til næst, og hérna er ein mynd til að skemmta ykkur, hver hefur ekki lent í þessu!!!!!

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla
Aðeins og sein í þessu á nýja árinu, en það verður bara að vera svona núna og ég sé að það eru einhverjir en að skoða síðuna og það er best að blogga aðeins fyrir þá sem eru en að vonast eftir því að það komi nú blogg. Og já hérna kemur eitt.
Er nú ekki akveg að nenna að gera einhvern annál fyrir síðasta ár, en kannski bara hlaupa yfir það á hundavaði
Janúar: byrjaði að vinna hjá Alcoa
Febrúar: Fór til Kanada og var það í 3 vikur í starfsþjálfun
Mars: Tryggvi fór til Kanada í 11 daga
Apríl: Var bara óskup venjulegur og fljótur að líða
Maí: Átti afmæli og varð einu ári eldri og hætti hjá Alcoa
Júní: Byrjaði að vinna á leikskólanum á Reyðarfirði og fór suður í 1 árs afmæli hennar Söndru
Júlí: fór í 5 vikna sumarfrí sem var bara alveg frábært
ágúst: fór að vinna aftur eftir sumarfrí
September: Hætti að vinna á leikskólanum og fór að vinna hjá Samskip
október: var bara fljótur að líða og ég mann ekki alveg hvað var að gerast
Nóvember: Hætti hjá samskip og Tryggvi minn varð þrítugur
Desember: Byrjaði aftur að vinna á Leikskólanum og jólin voru alveg yndisleg.
Þá er þetta komið svona á hundavaði.
Svo er komið nýtt ár og vona að það verði en skemmtilegra en það síðasta og það byrjar bara vel.
Fórum síðustu helgi á Þorrablót og það var alveg hrikalega skemmtilegt og núna erum við að fá vini okkar til okkar og ætlum að elda saman og hafa það gaman.
Svo er ég orðin deildarstjóri eftir hádegi á minni deild leikskólaunum og það hækkar launin aðeins meira og var ég frekar hissa þegar ég var beðin að taka það að mér og átti sko alls ekki von á því en þetta er eitthvað sem ég samt tek mjög alvarlega og ætla að skila þessu vel.
Svo erum við eitthvað að reryna að huga af því hvað við ætlum að gera í sumar, ætlum að fara eitthvað út en vitum ekki alveg hvert við viljum fara, en erum að bíða eftir því að það komi í ljós hvernig sumarfríið á leikskólanum verður og eins hvernig þetta verður hjá Tryggva.
Jæja þetta er orðið gott í bili og Fannar svo er bara að kvitta
Bið að heilsa héðan úr snjónum á Reyðarfirði
Jæja þá er komin september og við búin að búa á Reyðó í tæpa 10 mánuði
Í fréttum er þetta helst að það er sól og bíða hérna í dag og alveg yndislegt veður og líka að ég er búin að fara smá í berjamó sem var bara alveg mjög gaman þetta var svona fjallgönguberjamó, því við löbbuðum langleiðina upp á grænafell en svo fór að rigna og við skelltum okkur í flýti niður enda ekki klædd fyrir rigningaveður, enda mjög gott veður þegar við lögðum á stað.Það er líka í fréttum að ég er komin með nýja vinnu sem ég byrja í 14 sept og hlakka mjög mikið til að takast á við þetta nýja verkefni, en ég verð sem sagt þjónustufulltrúi hjá Samskip hérna á Reyðó, en verð samt bara eina konan þar, þannig að þetta verður eitthvað nýtt að vinna bara með körlum, en fer í 3 daga upp á Egilstaði til að læra, þannig að þetta verður fjör, var ekki alveg að fíla það að vinna á leikskóla og launin bara til að gráta yfir skal ég segja ykkur.
Svo fékk Tryggvi að vita það að hann klárar samninginn sinn hjá Alcoa í júní 2008, það er sem sagt minna en ár eftir af samningnum hans og hann var bara mjög glaður með það og skellir sér svo í sveinspróf í júní vonandi og er þá orðin Rafvirki, þannig að Tryggvi er alveg að fíla sig mjög vel í sinni vinnu, sem er bara gott.
Erum að hugsa um að skella okkur norður um miðjan september, en það er samt ekki alveg komið á hreint.
Sumarfríið var alveg frábært og höfðum það sko alveg rosalega gott.
Jæja læt þetta duga í bili og hafið það gottkveðja Scully
Jæja þið sjáið rétt það er komið blogg
Það er að segja ef einhver kíkjir hérna inn enþá, héðan er bara allt gott að frétta og veðrið bara bíð að vera ágætt svona síðustu 2 vikur.Það er búið að vera gestkvæmt hérna hjá okkur síðustu helgi komu Palli vinur hans Tryggva og Emil sonur hans og gistu hjá okkur eina nótt og svo kom Fannar bróðir hingað og gisti eina nótt en hann var hérna í vinnuferð.Og svo í dag Komu Eydís og Toni með krakkana sína Lárus Inga og Köru Líf og svo komu líka Kiddi og Björt með krakkana sína Soffíu og Sölva, þannig að það er bara búið að vera mjög gaman að fá fólk í heimsókn og svo er ég að fara suður og gerast Aupair í 5 daga og passa prinsessuna mína hana Söndru Rut en hún varð 1 árs núna í júní, þannig að það verður stuð hjá okkur í þessa 5 daga, og svo kemur Tryggvi suður á föstudaginn og þá er hann komin í sumarfrí og þá ætlum við í bústað í munaðanes til tengdó og svo norður og aftur austur og svo veit ég bara ekkert hvað við gerum.
En ég er hætt hjá Alcoa og farin að vinna á leikskólanum á Reyðó en ég er ekki alveg viss hvernig ég er að fíla það en þetta verður bara að koma í ljós en er í 5 vikna sumarfríi, því leikskólanum er lokað í 5 vikur í einu.
Jæja þetta er gott í bili og vona að Fannar bróðir sé glaður að fá smá blogg, enda búinn að kvarta mikið undan bloggleysi og líka fleirikveðja frá Austurlandi
Nýtt MSN netfang
Ég lenti í einhverju fokki með MSN-ið mitt og þurfti því að breyta um netfang og þar sem ég man ekki öll netföngin ykkar þá bið ég ykkur endilega að bæta mér inn hjá ykkur nýja hotmailið mitt er shaloa78@hotmail.comkv Scully